
William K. Black, háskólaprófessor og fyrrverandi fjármálaeftirlitsmaður, hélt stórmerkilegan fyrirlestur í Háskóla Íslands. Mikið fjölmenni hlustaði á hann, meðal annars formaður rannsóknarnefndar Alþingis, sérstakur saksóknari, yfirmaður efnahagsbrotadeildar lögreglunnar og Gunnar Andersen, nýr forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Gunnar sagði frá málum sem FME er að rannsaka – og nefndi að þar kæmi meðal annars við sögu innherjaviðskipti og markaðsmisnotkun.
Hér er viðtalið við Black úr Silfrinu í gær, í tveimur hlutum, með íslenskum texta. (Ég þakka Láru Hönnu fyrir hjálpina.)
Fyrri hluti:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=Ph-YJIyQ128]
Seinni hluti:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=yPtWQ8rPhno]