
Hverjir eru það innan Fjármálaeftirlitsins sem standa fyrir þessum málarekstri gegn fjölmiðlamönnum.
Í þetta virðist fara ómældur tími og fyrirhöfn – í staðinn til dæmis að FME komi frá sér málum sem lengi hafa verið í rannsókn, eins og til dæmis Stímmálinu.
Blaðamenn vita að FME svarar yfirleitt aldrei neinum spurningu. Það er með fjölmiðlafulltrúa, en í raun er eins hægt að tala við símsvara sem segir: No comment.
En nú hefur allt í einu vaknað smá líf á Suðurlandsbrautinni.
Í fréttinni sem vitnað er í hér að ofan er talað um FME eins og ópersónulega og andlitslausa stofnun. En að baki þessum gjörningum eru einhverjir einstaklingar. Hvaðan taka þeir við skipunum? Hverjir eru þetta?
Er stjórnarformaðurinn, Gunnar Haraldsson, samþykkur þessu?
En nýi forstjórinn, sem var skipaður í dag, Gunnar Andersen?
Því það vekur athygli að þetta gerist meðan FME er forstjóralaust.
Yfirmenn í bönkunum virðast hafa fjarstýrt FEM á árunum fyrir hrun.
Varla gera þeir það lengur?
Ég minnist þess þó að Sigurður Einarsson hefur kvartað sáran undan fréttunum sem hafa birst um útlán Kaupþings – sem FME liggur svo mikið á að stöðva.