

Norsk/franski rannsóknardómarinn Eva Joly verður gestur í Silfri Egils í dag. Hún er einn þekktasti sérfræðingur í efnahagsbrotum í heiminum og er dáð fyrir framgöngu sína í hinu fræga Elf-hneyksli í Frakklandi.
Hér fylgir æviágrip Evu Joly sem Jón Þórisson tók saman:
Eva Joly er fædd í Noregi 1943 (Eva Gro Farseth) en fluttist 18 ára gömul til Parísar þar sem hún giftist syni fjölskyldunnar sem hún var ráðin til sem au pair. Eva lærði lögfræði í kvöldskóla og sérhæfði sig í fjármálalögfræði.
Frá árinu 1994 gegndi Eva Joly starfi yfirrannsóknardómara í París, Juge d’Instruction en þetta embætti nýtur sérstakrar verndar samkvæmt frönskum lögum. Juge d’Instruction í Frakklandi hefur ótakmarkað vald til athafna í rannsóknarmálum og nýtur fullkomins sjálfstæðis, þannig að jafnvel forseti lýðveldisins hefur ekki vald til þess að reka slíkan dómara úr embætti. Eina ráð valdhafanna gagnvart dómara sem menn vilja “losna við” er að fá viðkomandi enn æðra embætti – freisting sem Joly stóðst.
Sem rannsóknardómari var Eva lykilmaður í að rekja eitt stærsta spillingarmál sem upp hefur komið í Frakklandi, þar sem olíufélagið Elf Aquitaine var grunað um misferli. Þetta mál, sem breska blaðið Guardian sagði vera umfangsmestu spillingarransókn í Evrópu eftir stríð, leiddi til dóma yfir fjölda háttsettra embættis- og stjórnmálamanna. Þræðir þessa máls lágu víða, m.a. til Þýskalands þar sem nafn Helmut Kohl tengdist vafasömum viðskiptum og meintum mútugreiðslum. Áður en yfir lauk, höfðu 30 manns hlotið dóm fyrir að hafa með glæpsamlegum hætti komið undan um 450 milljón evrum.
Í viðtali við Guardian árið 2001 segir Joly um rannsóknina á Elf olíufélaginu:
“Við rannsókn svona máls, segir almenn skynsemi manni að æskilegt sé að kalla til fjölmennt lið lögreglu, leyniþjónustu og embættismanna frá skattayfirvöldum, og beita öllu afli ríkisvaldsins til þess að þrýsta á þau erlendu ríki sem tengdust málinu. En ríkið, þú og ég sem sagt, og allir skattgreiðendur, látum ræna okkur án þess að hreyfa mótmælum.”
Síðan segir hún:
“Ég áttaði mig á því að ég varð að taka á fjármálaglæpum eins og venjulegum afbrotum. Einhver rænir bensínstöð. Hann er eltur uppi og settur í varðhald, heimili hans er rannsakað og hann er dæmdur í 10 ára fangelsi. En þegar framkvæmdastjóri stórfyrirtækis stelur hundrað milljónum, tekur dómsvaldið á honum með silkihönskum.”
Í lok viðtalsins segir Joly: “Það er erfiðara fyrir kerfið nú en áður að sópa spillingarmálum undir teppið…en við erum enn eins og lögreglustjórarnir í amerísku cowboymyndunum, sem elta glæpamennina að Rio Grande ánni en geta ekki haldið eftirförinni áfram yfir ánna”. Hún telur að taka þurfi á alþjóðlegum glæpum í samstarfi þjóða og segist í viðtalinu ætla að gera þetta að sínu næsta baráttumáli.
Árið 2005 var Eva Joly ráðinn í nýtt embætti innan NORAD (Norska þróunarsamvinnustofnunin), til þess að vinna gengn spillingu í þróunarstarfi Norðmanna, þar sem hún starfar í dag, en þá hafði hún verið sérfræðingur norska dómsmálaráðuneytisins í baráttunni gegn peningaþvætti og spillingu frá árinu 2002.
Bók Joly, Justice Under Siege, sem fjallar um rannsóknina á Elf olíufélaginu kom út á ensku árið 2006 hjá Citizen Press í London. Citizen Press, sem rekið er af Sigurði Gísla Pálmasyni og Birni Jónassyni bókaútgefanda, hefur látið prenta upplag af bókinni í tilefni af komu Joly til Íslands og verður hún fáanleg í öllum bókabúðum.
Franski kvikmyndaleikstjórinn Claude Chabrol gerði kvikmynd (2006) eftir bók Joly. Í kvikmyndinni, L’Ivresse du pouvior (Comedy of Power) er Isabella Huppert í hlutverki Joly. Myndin er á skrá hjá Aðalvídeóleigunni á Klapparstíg.
Fyrir nokkrum vikum kom út bókin “Recovering Stolen Assets” með formála eftir Joly en höfundur bókarinnar er Mark Pieth, prófessor við háskólann í Basel í Sviss.