
Ekki skilur maður alveg í ráðherrum, forsætisráðherra og viðskiptaráðherra – og formanni Sjálfstæðisflokksins – að ætla að mæta á stórfund hjá viðskiptaráði þar sem á að tala um „endurreisn hagkerfisins“.
Viðskiptaráðið er batterí sem þyrfti að fara í grjótharða sjálfsgagnrýni á næstu árum.
Eiginlega væri ráð að það byrjaði á því að biðja þjóðina afsökunar eins og Benedikt Sigurðsson talar um í þessari bloggfærslu.
Svona er stjórn Viðskiptaráðs skipuð. Þarna eru fulltrúar gömlu bankanna og stóru eignarhaldsfélaganna fremstir í flokki. Aðilar sem eru kannski fremur vandamálið, en lausn á því.
Formaður
Erlendur Hjaltason
Stjórn
Ingólfur Helgason
Halla Tómasdóttir
Katrín Pétursdóttir
Kristin Jóhannesdóttir
Halldór J. Kristjánsson
Knútur Hauksson
Þór Sigfússon
Lárus Welding
Hildur Árnadóttir
Tómas Már Sigurðsson
Hermann Guðmundsson
Róbert Wessman
Þórður Magnússon
Ari Edwald
Jón Sigurðsson
Hreggviður Jónsson
Margrét Pála Ólafsdóttir
Guðmundur Kristjánsson