
Nú virðist enn eiga að reyna að selja Líbýumönnum Kaupþing í Lúxemborg.
Og enn vakna spurningar um meðreiðarsveina Líbýumanna. Vitað er um náin tengsl Sigurðar Einarsonar við þá.
Margir eru þeirrar skoðunar að Kaupþing í Lúxemborg sé einn lykillinn að rannsókn íslenska fjármálahrunsins.
Ef það er rétt ættum við ekki að sætta okkur við að upplýsingar lokist endanlega þar inni.
Í frétt í Morgunblaðinu segir að rannsóknarnefnd þingsins eigi í erfiðleikum með að fá gögn frá útlöndum.
Þetta er varfærnislega orðuð frétt, en heimildir mínar herma að þarna standi helst á Fjármálaeftirlitinu.
Það hafi ekki óskað eftir gögnum frá íslensku bönkunum í Lúxemborg – og þykir það furðu sæta.