

Þessi mynd er frá eyjunni Tortóla. Það virðist vera afskaplega falleg þarna.
Og hér er brot úr grein sem birtist í Morgunblaðinu um Samson, eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga, og fjármagnsflutninga til Tortóla:
„Af skýrslunni að dæma virðast flestar eignir Samson í dag vera lán til annarra félaga í eigu Björgólfsfeðganna. Þegar Samson óskaði eftir gjaldþrotaskiptum hinn 12. nóvember síðastliðinn lagði félagið fram yfirlit sem sýndi að eignir þess væru rúmlega 172 milljarðar króna. Enn sem komið er hefur tekist að innheimta 2,3 milljarða króna af þeim eignum og heimildir Morgunblaðsins herma að bjartsýnustu menn vonist til að alls náist að innheimta tíu milljarða króna.“