
DV fjallar um kúlulánin og hefur eftir Stefáni Má Stefánssyni lagaprófessor að þau séu hættuleg og hugsanlega ólögleg líka. Lánastarfsemin á síðustu metrum bankakerfisins veldur furðu. Það kemur fram í fréttinni að tæpur helmingur af lánum íslenska bankakerfisins síðasta árið hafi runnið til eignarhaldsfélaga.
Það voru þessi eignarhaldsfélög sem áttu bankana.
En kúlulánin höfðu meðal annars þann tilgang að halda uppi verði bankanna á hlutabréfamarkaði.
Um það segir Stefán Már:
„Þetta getur verið markaðsmisnotkun vegna þess að búið er til verð á hlutabréfum bankanna sem á ekki við rök að styðjast og þá er markaðurinn misnotaður,“