fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Bréf um skuldir Exista, grimman Jóhannes, einkennileg lán og sama sukkið

Egill Helgason
Mánudaginn 16. mars 2009 07:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Krónubrask

That large short-sale position of ISK by the banks is quite shocking. It was currency manipulation and should be treated as such.

It is even more shocking that the banks would take such a position against their own currency. Banks often short other currencies. For instance, Deutsche Bank and JP Morgan caused the crash of the South African rand in 2002 by shorting the rand. A similar situation occurred in Indonesia. But banks are not supposed to crash their own currencies, for profit.

The short-positions were also a way for the banks – the insiders and the bank subsidiaries – to in effect sell their stock and bypass the insider trading and stock-sale reporting requirements. The bankers may have considered this to be hedging (i.e. taking an opposite position to balance risk) – but it’s not hedging when the amount exceeds the stock holdings. That’s a form of insider trading on steroids.

So you can add currency manipulation to the already long list of crimes.

Adba is probably correct in saying that the carry-traders didn’t cause the fall of the ISK. It was a combination of factors that created the bubble, including carry-trade money (mainly Glacier bonds)) but also “Hot Money”, money that flows regularly between financial markets in search for the highest short term interest rates possible. This hot money could be from anywhere, US, Britain, Germany.

— — —

Einkennileg lánastarfsemi

Góðan og blessaðan daginn.

Ljómandi góður þáttur hjá þér! Mætti vera lengri ef eitthvað er.

Ég var að lesa þennan ljómandi góða pistil frá 8. mars 2006
http://www.althingi.is/johanna/greinar/safn/002617.shtml

„Einnig þarf að taka sérstaklega á lánveitingum til stjórnenda fyrir hlutabréfum í eigin hlutafélögum með veðsetningu í sjálfum bréfunum, sem er ótrúlegt að sé heimilt.“

„Þetta vekur upp tortryggni, ekki síst í ljósi þess að þessum lánveitingum hefur væntanlega verið varið til hlutabréfakaupa í þeim bönkum sem stjórnendurnir veita forstöðu, væntanlega með veði í sjálfum bréfunum og að lánveitandinn tryggir stjórnendur gegn tapi á hlutabréfunum.“

Þessi málefni hafa verið örlítið í umræðunni. Þorvaldur Gylfason hefur vitnað í lagaheimild frá 1997 til banka og annarra fjármálastofnana til að veita lán til að kaupa bréf í bönkunum með veði í bréfunum sjálfum.

Mér vitanlega er þetta kolólöglegt í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Að fyrirtækið sem þú vinnur hjá láni þér, eða þínu ehf. peninga, til að kaupa hlutabréf í sjálfu fyrirtækinu, með veði í sjálfum bréfunum!

Veistu um eitthvert ríki í hinum vestræna heimi þar sem þetta er löglegt? Vildi gjarnan fá lista í stafrófsröð.
Eva veit kanski eitthvað 😉

— — —

Er ekki í lagi hjá skilanefndunum?

Baugsmenn:

Ef að Jóhannes í Bónus verður ennþá Jóhannes í Bónus eftir meira en örfáa mánuði eru íslenskir bankamenn enn slappari en mann renndi í grun.

Ef það er ekki tryggt að lánveitendur hafi veð í eignum eins og Bónus, Hagkaup, 10-11 og svo framvegis, vegna lána til feðganna, þar sem töpuðust tugir milljarða og rúmlega það, þá er eitthvað meira að hjá okkur en þeir ófáu hlutir sem þegar hafa sýnt sig að eru í ólagi. Það er augljóst að það þarf að snúa sölunni á þessu við.

Milestone og Wernersbræður:

Í Viðskiptablaðinu í dag kom fram að Karl Werners og bróðir hans hafi selt Lyf og Heilsu út úr Milestone í mars í fyrra og eigi keðjuna í dag!

Í hnotskurn þýðir þetta eftirfarandi:

Aðal eign Wernersbræðra var Lyf og Heilsa fyrir nokkrum árum. Mig minnir að þeir hafi meira og minna erft þá eign. Þeir byggja síðan á þeirri eign, fara á yfirtökufyllerí í nokkur ár, fljúga um á einkaþotum og fleira í þeim dúr. Tékkanum fyrir þá hegðun hefur verið rennt inn um lúguna hjá okkur öllum með þeim afleiðingum að við erum á hausnum í dag.

En Wernersbræður byrja bara upp á nýtt með gamla arfinn sinn ósnertann!

Halló bankamenn og skilanefndir – er ekki allt í lagi?

— — —

Alltaf sama sukkið

Þetta er gott dæmi um það hvernig “markaðurinn” eins og hann er skilgreindur hér heima virkar. Menn tala alltaf um markaðslögmál en gleyma að hér ríkir fákeppni, aðstöðumunur, hringamyndun og ógegnsæi.

Svo maður tali nú ekki um græðgina sem virðist vera heróín landans.

Sérlega áhugavert er að skoða í þessu samhengi framsal mjólkurkvóta og verðmyndun þar. Nákvæmlega sama sukkið.

Einnig má nefna Sparisjóðina en líkja má sölu stofnfjarbréfa við kvótasölur hér að ofan. Enn og aftur, nákvæmlega sama sukkið.

Heiðarleg tilraun til að ná inn markaði með framleiðslu á raforku og dreifingu hennar var svo enn eitt innleggið og ekki ljóst hvernig það endar allt saman. Skuldastaða þeirrar iðngreinar er óhugnaleg og meira og minna í ábyrgð ríkis og sveitafélaga.

Hér er verðmyndun háð einhverjum allt öðrum lögmálum en “markaðslögmálum” enda varla hægt að reka opinn og heiðarlegan markað í svo litlu landi. Í öllum tilfellum er verið að búa til lausafé og veðhæfni þar sem ekki var neitt áður. Því smalað sem þingmaður einn kallaði “fé án hirðis” en ég kalla “fjárdrátt”.

Þeir sem stýra landinu þurfa að rýna þessa hluti vel og meðtaka þá kennslustund sem reynslan er að leiða í ljós. Það má vel markaðssetja hluti án þess að efna til keppni í græðgi og bókhaldskúnstum.

— — —

Húsleit hjá FME

Mjög góður punktur hjá þér þetta með húsleit… það hafa margir verið að tala um þetta í nokkrar vikur..Mjög undarlegt að engin umræða hafi verið um þetta á þessum nótum fyrr en í þessu bloggi hjá þér…
Málið er að FME hreinlega neitar sérstaka saksóknaranum um gögn.. .þrátt fyrir augljósan grun um refsiverða háttsemi.
Hvað gera saksóknarar þá?  Jú, þeir óska eftir húsleitarheimild eða haldlagningarheimild hjá héraðsdómi…  dómstólar mynduþá bara neita henni…
Þetta er eitthvað sem sérstaki saksóknariinn hefur ekki þorað að gera…kannski er þetta vísbending um framtíðina.
Þess vegna var óskað eftir lagabreytingu – svo ekki þyrfti að fara hina venjulegu leið.
Þessi lög eru svona „save face“ lagafrumvarp fyrir FME…  eitthvað mjög mikið að þar…

Þar fyrir utan þá er öll umræða um bankaleynd mjög sérstök hérlendis… hún er hvorki heilög og í raun ekkert mál að aflétta henni – með dómsúrskurði…

— — —

Greiningardeildir, viðskiptablaðamennska, vildarlán og boðsferðir

Í þessu sambandi má minna á hlutverk greiningadeilda bankanna. Þessar deildir eru enn að störfum, eða lykilstarfsmenn þeirra, og stunda greiningar og spár. Hvert var hlutverk þeirra við að vekja væntingar og gera lítið úr gagnrýni á ógagnsæjan markað á Íslandi, krosseignatengsl og lánveitingar til eigenda?
Hef áður nefnt merkilega gagnrýni FME á starfsemi Glitnis í mars 2007. Ef þá hefði verið brugðist við þeim alvarlegu brotalömum sem voru á starfsemi bankans hefði mátt draga úr tjóni almennings vegna hrunsins og þeirrar staðreyndar að gengi var haldið uppi á kerfisbundinn hátt með markaðsmisnotkun.
Athugasemdir FME voru m.a.:
Veklagsreglum ekki fylgt og skortur á innra eftirliti.
Frávik frá fjárfestingarstefnum tiltekinna eignasafna.
Ónóg upplýsingaöflun og mat á þekkingu og reynslu viðskiptamanna áður en verðbréfaviðskipti áttu sér stað.
Staðsetning greiningardeildar innan markaðsviðskiptasviðs.
Flestu sem snéri að regluvörslu ábótavant.

Getur ekki verið að hættulegt sé að hafa greiningardeildir staðsettar innan markaðsviðskiptasviðs?! Ef við bætum svo ofan á þá hættu löngunum viðskiptablaðamanna til þess að komast í vinnu hjá auðmönnum, mútugreiðslum til blaðamannanna í formi vildarlána til hlutabréfakaupa og alls kyns boðsferðum (nú verður allt vitlaust!) þá má skilja að ekki er líklegt að blaðamennska á Íslandi sé á hærra plani en í Bandaríkjunum eins og snillingurinn Jon Stewart sýndi svo eftirminnilega.

Við getum svo að endingu velt fyrir okkur hvers vegna stærstu og flottustu byggingarnar í viðskiptahverfunum á Íslandi séu merktar í bak og fyrir með skiltum frá endurskoðunarfyrirtækjum. Það má alls ekki gleyma hlutverki þeirra í að auka flækjustigið og skjóta undan peningunum. Nú eru lykilstarfsemnn þessara fyrirtækja í skilanefndunum á útseldri vinnu á 20.000 kall á tímann. (höf: Ari Matthíasson.)

— — —

Grimmur Jóhannes

Fákeppni á Íslandi – 60-70% hlutdeild á markaði.
Stjórnar vöruverði sökum stærðar sinnar.
Mörg fjölskyldufyrirtæki fallin vegna viðskiptahátta hans og einokunar.
Fiskbúðir og kaupmenn á horninu hurfu.
Kaupfélögin voru felld fyrir hann.
Matvælaframleiðendur féllu vegna verðpíninga.

Þetta verður að laga og vonandi verður hans markaðshlutdeild skipt upp. Hvar er Samkeppniseftirlitið?

Og hvar var það?

— — —

Exista og skuldirnar

Það er til marks um geggjunina í skuldum að Bakkabræður segja að 94,000,000,000 króna skuld Exista í Kaupþingi sé einungis um 16% af skuldum Exista !!!

Sem segir að heildarskuldirnar séu liðlega 600,000,000,000 krónur !!!

Exista skuldar því meira en útgjöld íslenska ríkisins….

Og hverjir tóku svo Bakkavör strax úr Exista í einkaeigu sina?  Jú, Bakkabræður…hvernig var það fjármagnað?

Og hverjir tóku svo Exista yfir á 2 aura á hlut um daginn?  Jú, Bakkabræður…..

Allar eignir þeirra tapaðar? Hvað með allar arðgreiðslurnar sem fara beint í erlendu eignarhaldsfélögin þeirra eins og t.d. Bakkavör Holding í Lúx ?

Eru allir þeir milljarðar tapaðir líka ???

Neee….ætli það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki