fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Verður hægt að halda áfram í Helguvík?

Egill Helgason
Þriðjudaginn 10. mars 2009 11:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef sagt að það sé býsna fánýtt að þrasa um álver og ekki álver í því ástandi sem ríkir á heimsmörkuðum. Ofan á fjármálakreppuna hefur bæst framleiðslukreppa – hún kemur aðeins síðar – en vegna hennar hefur verðið á áli hrunið og álfyrirtæki eru í verulegum vandræðum.

Ágúst Þórhallsson skrifar lærða grein um þetta á vefinn AMX í gær og beinir sjónum sínum að Century Aluminium sem er að reisa álverið í Helguvík. Samkvæmt honum er varla nema tímaspursmál hvenær framkvæmdirnar stöðvast – nema lánadrottnar taki yfir verkefnið og haldi því áfram.

Ágúst skrifar:

„Verðmæti félagsins í dag er í kringum fimm milljarðar en áætlaður kostnaður við uppbyggingu álversins í Helguvík er í kringum níutíu milljarðar eða um átján sinnum hærri upphæð heldur en núverandi verðmæti félagsins. Skuldir félagsins eru í kringum sextíu milljarðar. Tap félagsins í fyrra var um hundrað milljarðar. Með fréttatilkynningu sem gefin var út í maí 2007 áætlaði félagið að gefa út 7,3 milljón ný hlutabréf í félaginu til að byggja álverið á Íslandi. Gengið á bréfum félagsins var í kringum 55 dollara á hlut þegar tilkynningin var gefin út. Gengi félagsins í dag er 1 dollari á hlut. Flest álver eru rekin með gríðarlegu tapi þessa dagana og óvíst að mun stærri fyrirtæki eins og Alcoa haldi velli. Þegar gengi á fyrirtækjum er komið niður í einn dollar á hlut eru meiri líkur en minni að fyrirtæki nái sér aldrei á strik aftur og kröfuhafar eignist félagið fljótlega. Gera verður ráð fyrir að lánardrottnar eignist félagið fljótlega og þar með Norðurál ehf. sem er eitt dótturfélaga félagsins ásamt öðrum eignum þess m.a. verkefnið í Helguvík. Það virðist vera lítil umræða um það hvað lánardrottnar myndu gera við verkefnið í Helguvík taki þeir það yfir. Það er fráleitt að gera ráð fyrir því að þau plön sem Norðurálsmenn hafa nú á prjónunum um uppbyggingu álversins gangi upp. Langlíklegasta niðurstaðan er að lánardrottnar taki verkefnið yfir og selji það öðrum aðila. Hverjum ætti svo að detta í hug að taka við byggingu á nýju álveri í þeirri kreppu sem nýhafin er? Huga þarf að því að hægt sé að rifta þeim orkusölusamningum sem þegar hafa verið gerðir með skjótum hætti fari svo að félagið fari í þrot og nýta orkuna í önnur verkefni svo sem netþjónabú eða annan iðnað. Það hlýtur að vera miklu betra fyrir stjórnvöld að koma heiðarlega fram og gefa fólki á Suðurnesjum og fyrirtækjum ekki vonir um að uppbygging í Helguvík geti haldið áfram óbreytt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“