
Ekki ætlar Jóhanna að fara að sogast niður með Davíð Oddssyni?
Hann er þegar búinn að taka Geir Haarde með sér í fallinu.
Ég ímynda mér að sá kunni honum litla þökk fyrir; Geir verður í sögunni hinn eilífi varaformaður.
Jóhanna segir að ekkert sé að athuga við störf Ingimundar Friðrikssonar og Eiríks Guðnasonar.
Samt er seint hægt að segja að þessir menn njóti trausts.
Það er hægt að benda á ýmis afglöp Seðlabankans, en þessi eru ekki síst:
Þeim tókst að setja bankann á hausinn eins og Marinó G. Njálsson bendir á. Ríkisstjórnin þurfti að bjarga Seðlabankanum.
Undireins og Jóhanna fer að þrasa við Davíð – ja, þá er hún komin út á hálan ís.