
Sé þetta satt, þá ber það vott um einhvers konar sturlun.
Jón Ásgeir á að fá feit mánaðarlaun fyrir að sjá um eignir fyrirtækja sem hann hefur sett á hausinn með óráðsíu.
Það dugir ekki annað en að þegar hann fer loks að vinna hjá ríkinu verði hann launahæsti ríkisstarfsmaðurinn!
Og svo fyrirtækisbíl og afnot af þyrlu!
Væri ekki nær að hann borgaði þetta úr eigin vasa?
Og ferðaðist með neðanjarðarlest ef hann getur ekki rekið eigin bíl.
Ég er viss um að við værum mörg til í að skjóta saman í oyster card fyrir hann.