
Hæstiréttur
Talandi um tiltekt í seðlabanka og áhyggjur lögmanna af því sem þeir kalla árás á embættismannakerfið þá væri ekki úr vegi að koma með umræðu um hvort beri að endurskipa í Hæstarétt vegna viðtekinnar spillingar í vali á dómurum.
Slík umræða kæmi örugglega til með að koma blóðinu á hreyfingu hjá mörgum.
— — —
Bakkabræður
http://visir.is/article/20090205/VIDSKIPTI06/436197340
Gott fyrir þá! Bræðurna sem með brellibrögðum ætluðu að ná Exista úr
höndum kröfuhafanna.
En ég hélt að þetta hefðu verið peningar inni í gamla Kaupþingi. Og
jafnvel að Bakkavör skuldi gamla Kaupþingi kannski smá pening, þ.a.
skuldajöfnun hefði verið meira viðeigandi.
— — —
Fjármögnun útrásarinnar
“Kemur þá í ljós að útrásin var að stóru leyti kostuð af fé úr íslenskum bönkum?”
Er ekki tímabært að leita svara við þessum spurningum?
– Voru heildarútlán bankanna um eða yfir 10 þúsund milljarðar?
– Voru 60% þessara útlána til “erlendra aðila” (útrásin)
– Voru 30% þessara útlán til íslenskra fyrirtækja? (útrásin að stórum hluta þ.m.t. bankarnir sjálfir)
– Nema útlán bankanna til útrásarinnar a.m.k. 8 þúsund milljörðum?
– Eru “eignir” bankanna (sem miklu eiga að bjarga) nær eingöngu útlán þeirra?
– Hver eru veðin fyrir lánum bankanna til útrásarinnar? (Viðskiptavild?)
— — —
Útflutningsverðlaun forsetans
„Árið 2008 hlaut Baugur útflutningsverðlaun forseta íslands fyrir forystuhlutverk sitt í íslensku útrásinni og þann einstaka árangur sem fyrirtækið hefur náð í sölu- og markaðsmálum í verslunarrekstri á heimsvísu“.
5 mánuðum eftir forsetaverðlaunin og „einstakan árangur“ hrundi Ísland…
— — —
Samson
Það er eins með Samson og önnur íslensk útrásarfyrirtæki að það er ekki létt verk að reyna að finna út úr því hver á hvað og hvenær. Samson var upphaflega kaupandi að hlut ríkisins í Landsbankanum en síðar bættust í eignasafn félagsins fjölmörg félög, m.a fasteignafélagið Samson Properties ehf sem var umsvifamikið félag á sviði fasteignakaupa, m.a. hér á landi. Samson Properties ehf var svo tekið yfir af Novator Properties á þessu ári, en Novator Properties er samkvæmt mínum heimildum skráð á Kýpur.
Við yfirtökuna varð Samson Properties ehf. dótturfélag Novator Properties. Það félag er mjög umsvifamikið á erlendum fasteignamarkaði og líka íslenskum. Félagið er önnur af tveimur stærstu einstöku eignum hins gjaldþrota félags Samson.
En af hverju að breyta Samson Properties ehf. í Novator Properties? Þegar fréttir bárust af þessari breytingu, þar sem félag í eigu Bjögganna keypti félag í eigu Bjögganna, framkvæmdastjóri gamla félagsins gerðist framkvæmdastjóri nýja félagsins, spurði ekki nokkur kjaftur neinna gagnrýnna spurninga. Það spurði enginn hvað stæði að baki breytingunni, hvernig hún kæmi út fyrir land og þjóð. Það spurði enginn afhverju hið íslenska félag var í skyndingu flutt úr landi.
Novator Properties er ekki íslensk félag. Þangað runnu eignir hins íslenska félags Samson Properties ehf, og þar liggur stór hluti eigna hins gjaldþrota Samson. Félagið starfar samkvæmt reglum markaðarins á Kýpur og þrátt fyrir að Samson sé gjaldþrota og eigi ekki fyrir skuldum (kröfur í búið eru vel á annað hundrað milljarðar), þá ráða Bjöggarnir enn yfir félaginu. Það gera þeir í skjóli hagstæðra samþykkta hins kýpverska félags, samþykkta sem þeir sömdu sjálfir, vitandi að hinn íslenski fjármálamarkaður riðaði til falls. Komu þeir málum þannig fyrir í hinu Kýpverska félagi að meirihlutaeign Samson í félaginu fylgdu engin réttindi til að stjórna félaginu, þar sem hlutabréfunum var skipt í tvo hluta, A og B. Þeir halda sjálfir á A hlutabréfunum sem veita öll réttindi til að stýra félaginu, en B hlutabréfum var komið fyrir í Samson.
Í Samson eru líka hlutabréf í móðurfélagi XL leisure group sem fór í þrot fyrr á árinu. Það er ekki líklegt að þau hlutabréf séu einhvers virði í dag en í Samson var líka skilin eftir ábyrgðin góða sem þeir feðgar tóku á sig fyrir Eimskip vegna skulda XL. Það voru því ekki feðgarnir sem voru svo fórnfúsir menn létu líta út fyrir, heldur hin litla íslenska þjóð.
Gjaldþrot Samson er staðreynd. Skuldirnar teljast töluvert meiri en eignirnar. Samson skuldaði út um allar trissur en mest skuldaði félagið þó Landsbanka Íslands, bankanum sem nú er aftur kominn í hendur þjóðarinnar. Stór hluti skulda Samson var vegna skuldabréfaútgáfu. Þau skuldabréf voru áberandi í peningamarkaðssjóðum Landabankans og í eigu íslenskra lífeyrissjóða. Það er tapað fé.
Merkilegt nokk, þó svo að íslenskir sparifjáreigendur sem voru raunverulega plataðir til að setja sparisféð sitt inn í skuldabréfasjóðina í Landsbankanum, þá virðist lítið geta haggað fjármálaveldi Bjögganna. Þeir voru greinilega svo vel undirbúnir undir fallið að þeir ráða jafnvel enn yfir eignum hins gjaldþrota Samson.
Skuldirnar eru hins vegar eitthvað sem okkur er falið að finna út úr.
— — —
Ættbálkastríð
Það er ekki hægt að segja annað en að við lífum á mjög „spennandi“ tímum á
Íslandi núna. Svo virðist sem ættbálkastríð hafi nú geisað á Íslandi í
hálfan annan áratug og hefur alþýðan í landinu auðvitað borið mestan
skaða af því eins og reyndar er með öll stríð. Áður en þetta ættbálkastríð
hófst höfðu ákveðnir ættbálkar verið með völdin í sínum höndum um langt
skeið og höfðu kastað molum til alþýðunnar með ákveðnu millibili til að
halda henni góðri en eitthvað virðist óánægja hafa farið að aukast sem
gerði öðrum ættbálkum kleift að vígbúast með það að markmiði að hrifsa
völdin til sín. Nú verður fróðlegt að sjá hvaða ættbálkar koma til með að
ná yfirhöndinni í þessu stríði sem virðist vera að ná hámarki sínu um
þessar mundir. Eins og venjulega hefur alþýðan lítinn hag af því að nýr
ættbálkur nái yfirhöndinni því hún hefur það nokkurn veginn alltaf jafn
skítt hvaða ættbálkur sem er við völd nema að hún geti rakið ættir sínar
til þess ættbálks sem er við völd hverju sinni því hér hafa hæfileikar og
þekking ekkert gildi. Þetta hljómar reyndar eins og saga úr ævintýri sem á
ekkert skylt við nútímann enn…
Út í hinum stóra heimi hefur oft verið talað um að svæði eins og
Mið-Austurlönd stjórnist af ættbálkum og hagsmunum þeirra og að það hafi í
gegnum tíðina hindrað alla framþróun og lýðræðistilburði hjá þeim. Það er
mjög líklegt að hið siðmenntaða land Ísland eigi við sama vandamál að
stríða.
— — —
Trylltur dans Philips Green
Jón Ásgeir segir ótrúlegt að vita til þess að Landsbankinn sé að stuðla að því að bestu eignir Baugs í Bretlandi lendi í höndum breskra hrægamma.
Jafnframt tekur hann fram að Philip Green dansi án efa trylltan stríðsdans í stofunni hjá sér þar sem hann muni núna geta eignast fyrirtæki Baugs á lítið sem ekki neitt.
Hmmm…er þetta sami Jón Ásgeir og hafði samband við breska hrægamminn Philip Green og flaug honum sérstaklega til Íslands til að kaupa skuldir Baugs á 5-10% og eignast þar með eignir Baugs fyrir nánast ekki neitt ?
Just wondering….