
Það er ábyggilega mjög erfitt að meta eignir hruninna fjármálastofnana í miðri heimskreppu.
Matið hlýtur að verða nokkuð huglægt – það væri fróðlegt að vita betur hvaða aðferðum er beitt.
Í þessari frétt kemur fram að í mati á eignum Kaupþings hafi verið miðað við stöðuna í nóvember síðastliðnum, en Landsbankinn setji „verðmiða á eignir sínar þrjú til sjö ár fram í tímann“.
Er þá kannski rétt eins og segir í fyrirsögn fréttarinnar – sem er skringilega endaslepp – að eignamat gömlu bankanna sé næsta markaust?