
Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um ljósmyndir sem Halldór Laxness tók á sjötta áratugnum, bæði hér heima og erlendis. Ljósmyndirnar eru til sýnis í Þjóðmenningarhúsinu, en bak við margar þeirra eru litlar sögur sem Halldór Guðmundsson hjálpar okkur að rekja.
Fjallað verður um mikið og merkilegt þýðingastarf Atla Magnússonar en hann hefur meðal annars íslenskað stórvirki á borð við Nostromo og Lord Jim eftir Joseph Conrad, The Great Gatsby og Tender is the Night eftir F. Scott Fitzgerald og Fall konungs eftir Johannes V. Jensen.
Guðmundur Andri Thorsson segir frá nýrri þýðingu sinni á hinni klassísku barnabók um Bangsímon og Yrsa Sigurðardóttir segir frá uppáhaldsbók sinni.
Kolbrún og Páll fjalla um Sólkross eftir Óttar M. Norðfjörð og Í húsi afa míns eftir Finnboga Hermannsson.
En Bragi segir frá Bríeti Bjarnhéðinsdóttum og afkomendum hennar.