fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Gylfi gegn verslunareinokun

Egill Helgason
Þriðjudaginn 24. febrúar 2009 16:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefði fyrir löngu þurft að ráðast gegn verslunareinokuninni hér. Sjálfur Jóhannes í Bónus sagði eitt sinn að óæskilegt væri að matvöruverslanakeðja hefði meira en 10 prósenta  markaðshlutdeild.

Við höfum búið við ónýtt samkeppniseftirlit og stjórnmálamenn sem ekki hafa þorað að leggja til atlögu við verslunarrisana.

Þess vegna sæta þessi orð Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra miklum tíðindum.

Við höfum um margt búið við mjög óeðlilega skipan mála hvað samkeppni í verslun og fleiri greinum varðar á síðustu árum. Í mörgum tilfellum hafa mjög mörg fyrirtæki eða verslunarkeðjur starfað undir hatti fárra eignarhaldsfélaga, sem nú standa mörg hver mjög illa,“ sagði Gylfi við umræður utan dagskrár um stöðu verslunarinnar, en málshefjandi var Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

„Ég tel að þetta skapi ákveðin sóknarfæri í samkeppnismálum,“ sagði viðskiptaráðherra, „þannig að þegar kemur að því að greiða úr málum þessara eignarhaldsfélaga, þá verði þau ekki endurreist í fyrri mynd, heldur frekar seld í smærri einingum, sem vonandi eru þá rekstrarhæfar. Upp rísi verslunar sem verði með fleiri og smærri fyrirtækjum og þar af leiðandi meira svigrúm fyrir samkeppni. Það held ég að verði neytendum til góða og auk þess sé það sennilega besta leiðin fyrir kröfuhafana til þess að koma þessum eignum í verð, enda sennilega erfitt að fá kaupendur að einhverjum mjör stórum einingum um þessar mundir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi