

Tveir tékkneskir rithöfundar gnæfa upp úr á fyrri helmingi tuttugustu aldar. Stórkostlegir, hvor á sinn hátt.
Annar fjarskalega innhverfur gyðingur sem skrifaði á þýsku.
Hinn drykkjusvoli, ólíkindatól og háðfugl, skrifaði á tékknesku.
Franz Kafka og Jaroslav Hasek.
Ég nefni þetta bara af því að á Laugaveginum er búið að opna öldurhús sem heitir Kafka.
Almennt myndi ég vænta þess að væri minna stuð á Kafka en til dæmis Hasek.
Meðan sá fyrrnefndi skrifaði angistarfullt bréf til föður síns, og sögu um mann sem breyttist í skordýr, var á síðarnefndi að safna fé í stjórnmálaflokk sem hann stofnaði, Flokk minniháttar framfara innan ramma lagana.
Flokkssjóðurinn var drukkinn út á vinsælli krá.
