
Ég fann þetta bréf þegar ég var að hreinsa til í tölvunni áðan. 6. ágúst í sumar sendi hagfræðimenntaður vinur minn þennan póst sem mátti meðal annars lesa eftirfarandi. Ég man að mér þótti lesturinn hrikalegur. Þegar maður les þetta núna sér maður hvað stjórnvöld og ráðgjafar þeirra flutu sofandi að feigðarósi.
— — —
Mér þykir sýnt að í haust/vetur sjáum við eftirfarandi gerast:
1. Meira en helmings fækkun starfsmanna í byggingariðnaði og fasteignasölu.
2. Skarpasta samdrátt í einkaneyslu frá stríðslokum (töluvert meiri en eftir að síldin hvarf).
3. Mestu gjaldþrotahrinu Íslandssögunnar.
4. Mesta atvinnuleysi frá því í kreppunni miklu (það verður þó ekki endilega komið fram í vetur).
5. Hrun á fasteignamarkaði m.a. í atvinnuhúsnæði (við munum í fyrsta sinn í mörg ár sjá húsnæði standa autt og hálfklárað árum saman).
6. Hætt verður við fjölmörg fasteignaverkefni. Aðeins verða kláraðar 2 af stórbyggingunum við Höfðatorg. Verslunarmiðstöð og turnar Samson í miðbænum verða ekki byggð. Nýju turnarnar 101 Skugga munu standa auðir lengi eða verða breytt í leiguíbúðir. Sú uppbygging verður ekki kláruð á næstu árum. osfrv.
7. Miklu meira hrun á hlutabréfamarkaði en þegar hefur komið fram. Exista verður ekki til í núverandi mynd og Kaupþing getur auðveldlega lækkað um helming í viðbót og við vissar aðstæður gætu íslensku bankarnir hæglega orðið gjaldþrota. Líklegra er þó að áður en að því kæmi mundu erlendir bankar yfirtaka þá. Það eru t.d. líkleg örlög Kaupþings við þrot Existu.
Ekki hægt að koma í veg fyrir kreppu úr því sem komið er. Það sem ég óttast hins vegar er að aðgerðir og aðgerðaleysi stjórnvalda muni á endanum gera kreppuna meira langvarandi og jafnvel dýpri en ella í stað þess að nota tækifærið til að hugsa til langs tíma og efla stoðirnar.
Stóra hættan er að við missum ,,hæfasta fólkið” úr landi. Jafnframt munu vinnusömustu og best menntuðu útlendingarnir hverfa á brott á meðan hinir verða eftir.
Það er óhuggnanlegur en raunhæfur möguleiki að eftir fallið verði Ísland verstöð og verksmiðjubyggð í Norður Atlantshafi þar sem ungt og hæfileikaríkt fólk flytur í burtu en hinir sitja eftir í drungalegum hverfum grárra fjölbýlishúsa. Þótt niðursveiflan verði erfið er því mikilvægt að menn haldi höfði og hugsi til langs tíma.