
Ég lofaði í Silfrinu í dag að vísa á grein Haraldar Líndal Haraldssonar hagfræðings sem tók þátt í umræðum fremst í þættinum.
Og hér er greinin eftir Björn Þorra Viktorsson lögmann og fasteignasala sem einnig var í þættinum.
Hérna eru svo hugmyndir Árna Guðmundssonar um skuldaafskriftir, en þær bar líka á góma í Silfrinu:
Gagnagrunnur um skuldaafskriftir
Ástæða hugmyndar: Verja jafnræði og endurvekja traust á helstu viðskiptabönkum þessa lands.
Megininntak: Búinn verði til gagnagrunnur þar sem komi fram upplýsingar um:
(1) heildarfjárhæð afskrifaðara skulda hvers fyrirtækis í ISK
(2) hlutfall afskrifaðara skulda af heildarskuldum
(3) hlutfall af hlutafé sem ríkið eða fjármálastofnanir þess yfirtaka í viðkomandi fyrirtæki vegna afskriftanna
(4) eignarhald á viðkomandi fyrirtæki fyrir og eftir afskriftir
(5) ákvörðun afskrifta skuldanna þ.e. af hverjum er hún tekin og hvers vegna
Framkvæmdarleg skilyrði: Nauðsynlegt er að þessar upplýsingar séu
A ) skráðar í grunninn um leið og ákvörðun hefur verið tekin um afskrift skulda og
B) öllum aðgengilegar til þess að eftirlitið eða aðhaldið með athöfninni nýtist sem best.