
Kreppan sem nú ríður yfir heiminn sýnir okkur að það þarf að hugsa allt hið kapítalíska kerfi upp á nýtt. Kerfi gróðahyggju og mannfyrirlitningar hefur gengið sér til húðar.
Þarna er eitt skref í þá átt, og nokkuð myndarlegt að því er virðist.
Lyfjarisinn GlaxoSmith Kline breytir um stefnu og ætlar að sjá fátæku fólki fyrir ódýrum lyfjum, styrkja sjúkrahús og heilsugæslustöðvar og deila með öðrum lyfjategundum sem eru háðar einkaleyfum.