
Af tvennu illu vonar maður að Tzipi Livni verði forsætisráðherra Ísraels fremur en Benjamin Netanyahu.
Netanyahu átti sinn tíma sem forsætisráðherra á síðasta áratug. Þá gerði hann allt sem valdi hans stóð til að eyðileggja Oslóarsamkomulagið – sem hefði getað varðað leiðina að friði í Ísrael/Palestínu
Ofstækisfullir þjóðernisflokkar sóttu á í kosningunum í Ísrael, sérstaklega flokkur Avigdor Lieberman sem sækir fylgi sitt einkum til innfluttra Rússa. Lieberman gæti ráðið því hver verður forsætisráðherra. Ein krafa hans er að arabar sem eru ríkisborgarar í Ísrael – það eru um 20 prósent íbúanna – verði látnir sverja ríkinu hollustueiða en missi ríkisborgararéttinn ella.
Öðru megin víglínunnar eru fasistasamtökin Hamas – og fasistar seilast til áhrifa í Ísrael.
Félegt ástand.
Kannski fær ríkisstjórn Íslands fyrr en varir tækifæri til að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael.