

Einar Thoroddsen læknir er meðal gesta í Kiljunni í kvöld. Einar hefur lagt gjörva hönd á margt fyrir utan lækningar og nú hefur hann lokið við að þýða mikinn ljóðabálk, Þýskaland – Vetrarævintýri eftir sjálfan Heinrich Heine.
Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor við Listaháskóla Íslands, aðstoðar mig við að fara yfir nokkrar myndlistarbækur sem hafa komið út að undanförnu. Þar á meðal er stórkostlega fögur útgáfa af Flóru Íslands.
Einnig verður fjallað um endurútgáfu bókarinnar Þjóð í hafti eftir Jakob F. Ágeirsson. Í bókinni er rakin saga lítt þekkts tíma í sögu tuttugustu aldar á Íslandi þegar höft og skömmtun voru allsráðandi.
Kolbrún og Páll fjalla um Lesarann eftir Bernard Schlink og endurútgáfu á sögum Ástu Sigurðardóttur.
Bragi talar um kynni sín af frægum erlendum leikkonum.