fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Aðgangur almennings að upplýsingum um fjárhag og eignir þingmanna og tengsl við fyrirtæki

Egill Helgason
Miðvikudaginn 11. febrúar 2009 07:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónína Bjartmarz, fyrrverandi alþingismaður, sendi mér þessa grein.

— — —

Þingflokkur Framsóknarmanna  setti sér í apríl 2005  reglur um aðgang almennings að upplýsingum um fjárhag og eignir,  þóknun fyrir önnur launuð störf og  fjárhagsleg og stjórnunarleg tengsl við fyrirtæki; eignarhluta  og stjórnarsetur. Samtímis beindi þingflokkurinn því til forsætisnefndar Alþingis að hún beitti sér fyrir setningu slíka reglna fyrir alþingismenn alla, líkt og gert hefði verið hjá nágrannaþjóðum okkar og lýsti jafnframt yfir vilja til að aðlaga reglur þingflokksins að reglum forsætisnefndar  þegar og ef af  setningu þeirra  yrði, enda gengu þær lengra en ekki skemur.

Allir þingmenn flokksins, þar með talið þeir sem gegndu ráðherraembætum gengust undir þessar reglur sem jafnframt tóku til maka þingmanna. – Annað þótti geta boðið upp á tortryggni um málamyndagerning, að eignir þingmanna væru skráðar á maka  eða maki dekkaði stjórnarsetu, auk þess  sem  almenna reglan á Íslandi er sú  að hjón eru með sameiginlegan fjárhag.  Ætlunin var líka að reglurnar væru   virtar af varamönnum sem sæti tæku á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn.

Tíðarandinn vorið 2005
Á þessum tíma  var mikil umræða í samfélaginu um „einkavinavæðingu“ ríkisfyrirtækja sem að stórum hluta  snerist um eignarhluta í sjávarútvegsfyrirtækjum og kvótaeign og í takt við þá tíma nær eingöngu um eignir og eignatengsl þáverandi formanns Framsóknarflokksins.  Í  umræðu sem fram fór m.a. í þingsal var auk annars vísað  til sérstakra fyrirmæla  sem forsætisráðherra Danmerkur  hafði sett ráherrum í ríkistjórn sinni um að þeir upplýstu um öll fjárhagsleg og stjórnunarleg tengsl sín  og maka sinna við fyrirtæki.

Undangengin ár  hafði Jóhanna Sigurðardóttir reglulega lagt fram   þingsályktunartillögu   um „siðareglur alþingismanna“,   sem ætla mátti að nyti a.m.k. stuðnings  meðflutningsmanna hennar úr  Samfylkingunni.  – Þetta var að vísu allt áður en dansinn í kringum gullkálfinn og útrásarmennina náði hámarki, en þá þegar var tíðarandinn sá að ýmsir innan þings og utan höfðu það í flimtingum að upplýsingar margra framsóknarþingmanna sýndu fyrst og fremst fram á hversu slælega þeir hefðu staðið sig í að skara eld að sinni köku.

Gagnsæi og trúverðugleiki

Tilgangurinn var að gefa öllum þeim sem ekkert höfðu að fela,   tækifæri til að leggja spil sín  á borðið og stuðla að auknu gagnsæi og trúverðugleika þingmanna og traust og virðingu  löggjafarvaldsins alls, enda fylgdu fleiri þingflokkar og/eða þingmenn fordæmi okkar. Frumkvæði Framsóknarflokksins sýndi  m.a. ekki var stætt á því að halda því fram eða láta að þvi liggja að reglurnar yrðu að koma að ofan eða utan, frá forsætisnefnd eða sem kvöð skv. samþykktri þingsályktunartillögu.

Siðbótarvilji hjá Samfylkingunni?
Þau tvö ár sem eftir lifðu af þessu kjörtímabili fylgdi  enginn af hinum þingflokkunum foræmdi þingflokks framsóknarmanna  og mér vitanlega hefur þingsályktunartillaga Jóhönnu ekki verið endurflutt síðan þetta var.  Reglum um upplýsingagjöf þingmanna   var heldur ekki  siglt í höfn  af Samfylkingunni eftir að hún komst til valda í ríkistjórn með Sjáfstæðisflokknum,  með mikinn meirihluta þingmanna að baki.

Traust og virðing löggjafarsamkomunnar er  þjóðarhagur
Síðustu mánuði hefur margt orðið uppvíst sem hætt er við að litið sé á sem skýringu á  andstöðu einstaka þingmanna og þingflokka við að  gangast undir reglur um að veita almenningi aðgang að slíkum upplýsingum sem hér um ræðir. Stjórnmálin; stjórnsýslan,  framkvæmdavaldið  og Alþingi hafa beðið mikinn hnekki og  vantraust og tortryggni ræður ríkjum í íslensku samfélagi.

Tilviljun virðist ráða því  hvar fjölmiðlar bera niður við  skoðun á hagsmunum tengdum þingmönnum og öðrum ráðamönnum sem með einum eða öðrum hætti komu að hruninu.  Tortryggninni verður  ekki eytt fyrr en þingmenn taka höndum  saman um setningu reglna um aðgang almennings að upplýsingum um fjárhag þeirra og eignir og stjórnunarleg og fjárhagsleg tengsl við fyrirtæki.   Þeim ber að  setja  traust og trúverðugleika Alþingis í forgang fyrir öðrum hagsmunum og sjónarmiðum um  friðhelgi einkalífs þeirra.

Þjóðin á betra skilið.  Hún á mun meira skilið í kjölfar þeirra hörmunga sem gengið hafa yfir hana og hún á kröfu á fullri vitneskju um  hvar hjarta þingmanna slær  örast og fyrir hvað þeir standa.

Það er sjálfsagt að fjölmiðill spyrji nýjan  formann  Framsóknarflokksins, sem enn hefur ekki verið kjörinn á þing,  hvort hann ætli að fylgja fordæmi þingflokks Framsóknarflokksins  frá vorinu 2005.   Það er hins vegar vægast sagt ankannalegt  að á þeim  fjórum árum sem liðin eru og sérstaklega síðustu  fjóra mánuði, hafi ekki aðrir þingmenn  verið spurðir þess sama.

Jónína Bjartmarz

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki