fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Innanflokkspólitíkin hjá Fálkanum

Egill Helgason
Þriðjudaginn 10. febrúar 2009 20:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorgerður Katrín fer ekki í formannsframboð. Samt er víst að eitt sinn hafði hún augastað á því að verða fyrsta konan til að leiða Sjálfstæðisflokkinn.

Mál eiginmanns hennar, Kristjáns Arasonar, er vissulega erfitt fyrir hana. Hann var kannski ekki í alinnsta hringnum í Kaupþingi – en bara rétt þar fyrir utan.

En Þorgerður hefur líka orðið fyrir harðri atlögu innanflokks. Atlagan er komin frá Davíð Oddssyni og stuðningsmönnum hans sem eru sárgramir út í Þorgerði fyrir að taka líklega í ESB aðild og þó aðallega fyrir að hún talaði af óvirðingu um gamla foringjann.

Sagði honum hálfpartinn að þegja.

Þorgerður er persona non grata í þessum hópi. Honum þætti ekki slæmt að geta fellt hana úr varaformannssætinu líka.

Málin leggjast vel fyrir Bjarna Benediktsson. Hann tilkynnti framboð sitt og daginn eftir var birt skoðanakönnun sem sýndi yfirburðastöðu hans. Könnunin var gerð af frænda Bjarna, öðrum engeyingi, Benedikt Jóhannessyni. Það var þægilegt fyrir Bjarna.

Bjarni er greinilega sá sem á að taka við, erfðaprinsinn, maður sem hagsmunabandalögin sem eru svo sterk í flokknum geta vel fellt sig við. Nú hentar vel gera lítið úr því að Bjarni lýsti yfir stuðningi við aðildarviðræður við ESB fyrir jólin.

Sennilega var sú yfirlýsing aðallega til innanflokksbrúks, fremur en að hún hafi byggt á mati á hvað væri best fyrir land og þjóð.

Guðlaugur Þór Þórðarson áttar sig líklega á því að hann á lítinn séns í að verða formaður flokksins. Hann mun stefna á fyrsta sætið í prófkjörinu í Reykjavík. Það má teljast gott ef hann vinnur það. Gamli Davíðsarmurinn er lítið hrifinn af Guðlaugi – úr þeim herbúðum heyrist söguburður um að hann hafi verið of hliðhollur Baugi.

Þá er reyndar spurning hvað Kristján Þór Júlíusson gerir. Hann virðist stefna í að verða óskoraður leiðtogi flokksmanna sem koma utan af landi.

Og kannski er fullmikið af því góða að bæði formaður og varaformaður flokksins komi úr sama kjördæmi, bláa kraganum í kringum Reykjavík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki