
Í Kastljósi í kvöld verður fjallað um enn eitt dæmið um grófa misnotkun eigenda og stjórnenda á íslenskum banka.
Ég hef heimildir fyrir því að fleiri slík mál séu í uppsiglingu. Og svo eru önnur mál sem hefur verið fjallað um en er í raun ekki byrjað að gera upp.
Eins og til dæmis aðförin að íslensku krónunni. Sérfræðingar segja mér að sé hægt að sanna að þetta hafi verið samantekin ráð (sem flesti bendir til þess að hafi verið), þá sé það lögbrot.
Þessi mál þarf að fara að rannsaka fljótt og örugglega. Augljóst er að kerfið er vanmegna eins og það er.
Nýja ríkisstjórnin – þó hún sitji stutt – þarf að stórefla fjármálaeftirlitið, efnahagsbrotadeild lögreglunnar og gæta þess að rannsóknarnefndin og sérlegur saksóknari hafi góða aðstöðu til að sinna starfi sínu.
Það er óþolandi að hafa þessi mál hangandi yfir þjóðinni til lengdar; eitt af því sem felldi stjórn Geirs Haarde var sinnuleysi um að fá botn í nokkurt mál.