
Þetta er eiginlega svona catch 22 hjá Sigurði Einarssyni og félögum í Kaupþingi.
Annað hvort játa þeir að hafa dælt peningum út úr bankanum til vildarvina og sjálfra sín – eða – ef þeir neita því – þá eru þeir í raun að játa stórfellda markaðsmisnotkun.
Að hafa haldið uppi verði á hlutabréfum með blekkingum.
Það varðar líka við lög – þótt raunar hafi ekki verið látið á þau reyna á Íslandi…