fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Íslenskt viðskiptalíf, heimavætt en ekki hnattvætt

Egill Helgason
Föstudaginn 2. janúar 2009 07:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari útvarpsins í Lundúnum, flutti þennan pistil í Speglinum 18. desember. Efni hans er áhugavert í ljósi umræðna um gegnsæi, reglur eða skort á reglum í íslensku viðskiptalífi.

— — —

Það er tvennt sem getur komið viðskiptajöfrum á forsíðu Financial Times: annars vegar einstakur árangur, hins vegar óeðlilegir viðskiptahættir. Brosandi andlit David Ross á forsíðunni í síðustu viku var greinilega myndað áður en hörmungarnar dundu yfir hann – alla vikuna hafði hann verið að smá segja sig úr stjórnum í hlutafélögum sem hann sat í, auk þess sem hann sagði af sér sem Ólympíuleikaráðgjafi Boris Johnson borgarstjóra.

David Ross er 43 ára umsvifamaður. Fjárfestingar hans hafa sveiflað honum upp á einkaþotustigið. Hann er af útgerðarfjölskyldu í Grimsby og var endurskoðandi þegar einn vinur hans fékk hann til að taka þátt í að gera Carphone Warehouse að öflugustu farsímabúð í Evrópu. Árangur og auður hefur gert Ross að vinsælu fréttaefni. Hann er þekktur fyrir litskrúðuga og skemmtanasækna lifnaðarhætti og einnig fyrir að vera styrktarmaður Íhaldsflokksins, þar af ráðgjafastaðan hjá borgarstjóranum. Ross hefur meðal annars lánað flokknum þotuna sína og lánið er auðvitað skráð sem styrkur við flokkinn.

Fréttaefnið nú snýst um upplýsingagjöf. Þannig er að Ross á hlut í og situr í stjórnum fjögurra skráðra hlutafélaga. Þegar Ross þurfti á bankaláni að halda 2003 lagði hann hlutabréf sín að veði og tilkynnti það stjórnum viðkomandi hlutafélaga og yfirvöldum. Hér eru nefnilega reglur, reyndar óljósar, um að stjórnarmenn í hlutafélögum megi ekki ráðstafa hlutabréfum sínum, ekki heldur sem veði, án þess að tilkynna það. Þetta gerði Ross sumsé 2003.

Þremur árum síðar tók Ross aftur lán gegn hlutabréfum en í þetta skiptið upplýsti hann ekkert um það. Fyrir rúmri viku komst þessi veðsetning upp. Það er aðeins á huldu hvað gerðist – en líklega lenti Ross í veðkalli vegna lánsins. Hlutabréfin sem hann veðsetti hafa hrapað í verði eins og svo margt annað. Fjármálaeftirlitið segist nú vera að athuga málið. Fræðilega séð er hugsanlegt að höfða sakamál gegn Ross en viðvörun eða sekt er líklegri afleiðing – ef eitthvað verður á annað borð gert í málinu.

Ross er búinn að biðjast afsökunar, honum hafi orðið á mistök. Og hvað gerir svo Ross og stjórnir þeirra fjögurra hlutafélaga sem hann situr í? Yppa menn bara öxlum? Nei, öldungis ekki. Ross sagði af sér stjórnarsetu í öllum félögunum fjórum – og líka sem ráðgjafi borgarstjórans. Hvorki meira né minna. Samt er ekki ljóst hvort þessi óupplýsta gjörð Ross varði við lög því reglurnar eru, eins og áður sagði, ögn óljósar.

Lærdómurinn sem fjármálarýnar hér draga af þessu er sá að það sé auðvitað ógott að reglurnar séu óskýrar en Ross hafi gert rétt í fyrra tilfellinu: það sé betra að fylgja óljósum reglum í þeim anda sem þær eru settar. Reglurnar eigi ljóslega að efla upplýsingagjöf og í vafaatriðum sé rétt að upplýsa meira en minna.

Í yfirstandandi hremmingum hefur ýmislegt úr starfsháttum íslenskra fyrirtækja verið rifjað upp. Í Baugsmálinu komu fram ákæruatriði þar sem stjórn almenningshlutafélags var ekki upplýst um hvernig einn stjórnarmaður, Jón Ásgeir Jóhannesson, seldi hlutafélaginu fyrirtæki sem hann átti og naut hagnaðar af. Þessari ákæru var vísað frá, ekki bara einu sinni heldur tvisvar, af því saksóknari gat ekki undirbúið ákæruna rétt. Því var aldrei hægt að dæma um þetta atriði.

Hér er athyglisvert að hafa í huga að Ross lætur af störfum í hlutafélagsstjórnum vegna hugsanlegra brota á upplýsingaskyldu, án þess eða áður en reynir á lagalegu hliðina. Og af hverju skyldi hann þurfa að segja strax af sér, án þess að skorið sé úr um hvort hann hafi brotið lög? Jú, það er meðal annars vegna þess að stjórnir þessara hlutafélaga kæra sig ekki um að orðstír þeirra sé flekkaður – kæra sig ekki um að nokkur vafi leiki á að menn fylgi öllum leikreglum út í ystu æsar, hvort sem varðar beinhörð lög eða bara venjur. Upplýsingagjöf í íslenskum fyrirtækjum virðist iðulega hafa verið meira en lítið ábótavant – og já, það er eins og orðstír og heiður skipti hreint engu máli.

Upplýsingar um eignarhald er annar blindur blettur í íslensku viðskiptalífi. Frá enskum bæjardyrum séð er með ólíkindum að félög sem enginn veit hver á skuli ráðskast með eignir í íslensku viðskiptalífi – og einstaklega undarlegt að það skuli vera til fjölmiðlar sem ekki er upplýst hver eigi. Allt þetta eru dæmi um makalausa afskræmingu á gagnsæjum og upplýstum markaði. Þetta gerir til dæmis íslensk hlutafélög mjög óaðlaðandi fyrir erlenda fjárfesta. Meðan kaupin ganga þannig fyrir sig á eyrinni er íslenskt viðskiptalíf öldungis ekki hnattvætt, heldur bara heimavætt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki