fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Þjónusta við almenning eða sérhagsmuni

Egill Helgason
Sunnudaginn 26. júlí 2009 19:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt af stefnumálum ríkisstjórnarinnar er að sameina sjávarútvegsráðuneyti og landbúnaðarráðuneyti – og ef ég skil rétt iðnaðarráðuneyti – í eitt atvinnuvegaráðuneyti.

Sjávarútvegsráðuneytið og landbúnaðarráðuneytið hafa verið eins og þjónustustofnanir fyrir hagsmunaaðila í sjávarútvegi og landbúnaði; stjórnsýslan sem hefur verið stunduð í þessum ráðuneytum er algjörlega fráleit.

Stundum hefur maður spurt sig hvort ekki væri einfaldast að sameina LÍÚ og sjávarútvegsráðuneyti.

Bændasamtökin og landbúnaðarráðuneytið.

Það mætti alveg hafa þetta allt á sama kontór.

Í síðarnefnda ráðuneytinu hefur hagsmunagæslan verið grímulausust – iðulega á kostnað neytenda.

Enda er hefð fyrir því að það eru afturhaldssömustu landsbyggðarþingmenn sem eru dubbaðir upp sem landbúnaðarráðherrar.

Gunnar Helgi Kristinsson prófessor, helsti sérfræðingurinn um íslenska stjórnkerfið orðaði þetta svo í Mogganum þegar ríkisstjórnin tók við:

Það hefur mörgum þótt loða við sérstaklega landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið að þau væru veik gagnvart sínum atvinnugreinum og væru kannski of nátengd þeim.Sameinað ráðuneytið ætti að hafa burði til að vera faglega sterkara og með meiri möguleika á sérhæfingu og sérþekkingu, en þetta er líka pólitísk spurning,“ bendir hann á.  Annars vegar hafi ásóknin í ráðherrastóla alltaf verið sterk og unnið gegn sameiningu ráðuneyta hér á landi. Hins vegar snýst þetta um aðgang viðkomandi atvinnugreinar eða hópa, sem störf ráðuneytisins snerta, að ráðuneyti. Hópar sem hafa haft aðgang að sérstöku ráðuneyti sem sinnir hagsmunum þeirra hafa að sumu leyti betri aðgang að stjórnkerfinu.

En ef ríkisstjórnin meinar eitthvað með því að sameina þessi ráðuneyti í eitt atvinnuvegaráðuneyti spyr maður:

Dettur einhverjum í hug að Jón Bjarnason gegni því ráðuneyti?

— — —

Nú vill Jón fresta aðildarumsókn að ESB vegna deilna um Icesave við Hollendinga og Breta.

Umsóknin verður metin af framkvæmdastjórn ESB næstu mánuðina.

Eiginlegar viðræður við sambandið hefjast líklega á fyrri helmingi næsta árs, alls ekki fyrr.

Telur Jón að á þeim tíma verði Icesave enn ófrágengið?

Ætli Steingrímur J. sé sammála því mati?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið