
Þorvaldur Gylfason skrifar grein í Fréttablaðið. Þar kemur hann meðal annars inn á þverrandi traust á Íslendingum og hugsanlega fjárböðun íslenskra banka fyrir Rússa. Hér er niðurlag greinarinnar:
„Hafi komið til greina, að Norðurlöndin vildu leggja á sig að forða íslenzka ríkinu frá yfirvofandi vanskilum, virðist það nú ólíklegt. Ísland hefur síðustu ár verið vettvangur augljósra efnahagsbrota, sannkallað þjófabæli, sumpart í boði meðvirkra stjórnvalda, sem seldu bankana einkavinum við vildarkjörum þrátt fyrir vel þekktan brotaferil eins þeirra, og brugðust síðan eftirlitsskyldu sinni með öllu. Við þetta bætist veikluleg rannsókn brotanna, þar til ríkisstjórnin fyrir frumkvæði fólks úti í bæ réð Evu Joly rannsóknardómara í þjónustu sína. Stjórnvöld virðast ekkert hafa gert til að hrinda þeim þráláta orðrómi, að bankarnir hafi einn eða fleiri baðað fé fyrir Rússa. Allt þetta blasir við frændum okkar og vinum á Norðurlöndum og kann að slæva áhuga þeirra á að rétta Íslandi frekari hjálparhönd.“