fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Aðildarviðræður

Egill Helgason
Fimmtudaginn 16. júlí 2009 15:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu verður lögð fram í júlí.

Fyrst þarf að fjalla um aðildarumsóknina á vettvangi framkvæmdastjórnar ESB. Það tekur nokkurn tíma.

Síðan hefjast eiginlegar samningaviðræður, líklega á næsta ári.

Þetta getur tekið tvö og hálft til þrjú ár.

Kannski eitthvað styttri tíma vegna þess að Ísland er í EES og er þar partur af ESB á fjöldamörgum sviðum.

Við erum líka í Schengen-samstarfinu, ólíkt til dæmis Bretlandi.

Erfiðustu málin verða sjávarútvegurinn, kannski landbúnaðurinn og svo þarf Ísland að fá lausn á gjaldmiðilsmálum sínum. Það er náttúrlega ljóst að eins og er uppfyllir Ísland ekki skilyrði um upptöku evrunnar.

Það getur vel verið að aðildarsamningur verði felldur. Það er engin leið að spá um það. Að sumu leyti gæti það ráðist af ástandinu á Íslandi eftir nokkur ár – og hvernig efnahagslífið í Evrópu þróast.

Varðandi sjávarútveginn þá benti franskur sérfræðingur sem ég hitti mér á að Íslendingar ættu einfaldlega að byggja kröfur sínar á núverandi fyrirkomulagi fiskveiða við landið, þ.e. núgildandi skiptingu fiskveiðikvóta sem og flökkustofna. Hann taldi ekki óhugsandi að það yrði samþykkt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið