fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Nokkrir fótboltapunktar

Egill Helgason
Miðvikudaginn 15. júlí 2009 22:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KR er að fara að spila við gríska liðið Larissa í Evrópukeppni. Við Kári ætlum að mæta, halda með KR en sýna Grikkjunum mikla vinsemd. Erum vissir um að grísku aðdáendurnir séu ágætir, ekki eins og Everton aðdáendurnir sem komu hér um árið þegar KR keppti við enska liðið.

Þeir voru eins og óð dýr í búri, hryllilegur lýður.

FH er búið að vinna deildina á Íslandi. Þetta er ekkert skemmtilegt. Heimir Guðjónsson, gamli félaginn úr KR, er með langbesta liðið.

Atli Eðvaldsson er farinn að þjálfa Val. Mig hefur dreymt um að sjá hann þjálfa KR á nýjan leik; hann stjórnaði KR 1999, besta KR-liði síðan á gullöldinni. Atli er frábær íþróttamaður og félagi. Ég er reyndar orðinn svo meyr að mér er alls ekkert illa við Val lengur. Bý líka örfáa metra frá gamla KFUM og styttunni af Séra Friðrik.

Atli er í goðatölu vestur í bæ, eins og Heimir – og Pétur Pétursson.

ÍA virðist ekki ætla að fara upp úr 2. deildinni eftir að hafa fallið niður í haust. Það er afar sjaldgæft að lið af kalíberi Skagans fari ekki beint upp aftur – og í algjörri andstöðu við glæsilega knattspyrnuhefð bæjarins. Nú er ÍA á ekki löngu tímabili búið að reka sínar skærustu stjörnur: Tvíburana Arnar og Bjarka, Ólaf Þórðarson og Guðjón Þórðarson

Maður vonar að Akranes komist aftur upp á næsta ári, það er ómögulegt að hafa þá ekki í keppni hinna bestu.

Það er fallegt að sjá Alex Ferguson binda trúss sitt við Michael Owen, hina föllnu stórstjörnu. Kannski nær Owen sér á strik aftur – vonandi. Hann var ótrúlega hæfileikaríkur á sínum tíma. Tek fram að ég held ekki með United, en mér finnst Sir Alex flottur.

Við Kári ætluðum að fara að sjá myndina Looking for Eric í London um daginn, en fengum ekki að fara inn. Myndin var bönnuð, að því er sagt var vegna ljóts orðbragðs og notkunar vægra fíkniefna. Mér skilst að þetta sé notaleg kómedía þar sem Eric Cantona fer á kostum. Það hefur mikið verið fjallað um vináttuna sem myndaðist milli Cantona og leikstjórans, sósíalistans Ken Loach, við gerð myndarinnar. Á ljósmyndum sjást þeir halda utan um axlirnar hvor á öðrum, hinn smávaxni Loach og rumurinn Cantona.

Eitt enn um Cantona:

Ég hef líklega sagt söguna af því þegar hann var spurður að því að ensku blaði (The Sun?) hver væri uppáhaldsmaðurinn hans.

Cantona svaraði „Rambau“, eða þannig hefur það hljómað.

Blaðið sló því upp að Cantona væri mikill aðdáandi Rambós.

En auðvitað meinti Cantona skáldið Arthur Rimbaud, sem orti sín mestu kvæði fyrir tvítugt, sukkaði og svallaði, umbylti ljóðlistinni, en lét sig svo hverfa til Afríku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið