
Það er stundum sagt að peningar þekki ekki þjóðerni eða landamæri, og hefur aldrei verið sannara en á tíma alþjóðavæðingar.
Hér segir að útflytjendur skili ekki gjaldeyri sem þeir afla með því að selja vörur sem eru framleiddar á Íslandi eða koma úr íslensku
Það hlýtur að teljast afskaplega óþjóðhollt á þessum erfiðleikatímum. Það er stórkostlegt hagsmunamál fyrir íslensku þjóðina að gengi krónunnar styrkist.
Er nóg að höfða til velsæmiskenndar þeirra sem stunda þessa iðju, eða þarf að beita sterkari meðulum?
Nú virðist eiga að kalla forráðamenn fyrirtækjanna í huggulegt spjall yfir kaffibolla í Seðlabankanum?
Einn möguleiki er er sá að birta einfaldlega nöfn þessara fyrirtækja. Því að vissu leyti gera þau þetta í þeirri vissu að kerfið muni hylma yfir með þeim.
En á það nokkuð að vera svoleiðis?
Svo má spyrja hvort í þessum hópi séu fyrirtæki sem eru að veiða fisk úr sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar og telja sig eiga rétt til að halda því áfram um ókomna framtíð.