
Þegar Jón Kaldal skrifar um bankahrunið og rannsókn þess í Fréttablaðið hefur hann auðvitað fullt frelsi til að tjá skoðanir sínar.
En það er hins vegar óhjákvæmilegt að skrif hans séu metin í ljósi þess að aðaleigendur blaðsins eru útrásarmennirnir Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson – sem sæta rannsókn vegna hrunsins ásamt vinum sínum og viðskiptafélögum.
Jón skrifar í blaðið í dag að allir hafi brugðist, fjölmiðlar, háskólasamfélagið, Alþingi, rithöfundar – þetta er í raun ekki langt frá þeirri kenningu sem hann setti fram stuttu eftir hrun að almenningur gæti kennt sjálfum sér um.
Því auðvitað klikkuðu menn mismikið. Það var til dæmis stigsmunur á fréttaflutningi Morgunblaðsins og Fréttablaðsins fyrir hrun. Það þarf líka að skoða sérstaklega hlut þeirra sem fluttu viðskiptafréttir, þeirra sem beinlínis störfuðu við að flytja fréttir úr þessum sérstæða heimi.
Fréttablaðið lagði mikla áherslu á slíkan fréttaflutning – og það er óhætt að segja að hann hafi ekki verið ýkja gagnrýninn.