
Það er kvartað undan því að Eva Joly skilji ekki íslenska réttarkerfið.
Reyndar er erfitt að fatta hvað er svona óskiljanlegt.
Nema það sé nepótisminn sem hefur einkennt mannaráðningar í kerfinu og vanhæfni þess til að fást við fjársvik og hvítflibbabrot.
Nú er farið að ráðum hennar og ákæruvaldið styrkt til muna.
Dettur einhverjum í hug að þetta sé annað en til bóta?
Eða að sé vanþörf á?