

Þetta er stórkostleg mynd sem Gunnar Axel birtir, frá því þegar Landsbankinn fékk viðurkenningu fyrir bestu árskýrsluna.
Í september 2008!
Þeir eru glaðir á svip, Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Sigurjón Árnason bankastjóri.
Í áliti dómnefndarinnar stóð:
“Ársskýrsla Landsbankans er stílhrein og vönduð að allri gerð. Framsetning er skýr og myndefni styður vel við texta. Skýrslan gefur greinargóða mynd af stöðu bankans og starfsemi rekstrarsviða, fjármögnun og áhættustýringu. Umfjöllun um mannauðsmál, stjórnarhætti og samfélagslega ábyrgð er góð. Reikningar bankans eru skýrir og vel fram settir.”