
Upphlaupið vegna Sigríðar Benediktsdóttur, sem situr í rannsóknarnefnd Alþingis, gefur okkur ágætt tækifæri til að breyta vinnubrögðum í rannsókninni.
Sem felst í að opna starf nefndarinnar og breikka það. Gleymum ekki að nefndin var skipuð stuttu eftir hrunið, af síðustu ríkisstjórn, sem virtist ekki hafa áhuga að nokkur skapaður hlutur yrði rannsakaður.
Varla er nýja ríkisstjórnin eins?
Nei, það á að breyta starfsháttum nefndarinnar. Hafa opnar yfirheyrslur yfir þeim sem eiga hlut að máli, bankamönnum, stjórnmálamönnum, embættismönnum. Þetta var meðal þess sem sá ágæti bandaríski sérfræðingur William Black ráðlagði okkur.
Þjóðin verður að geta treyst því að sé það sé verið að taka á málum af alvöru, ekki bara til málamynda. Eins og staðan er núna er tortryggnin í samfélaginu óbærileg.