
Jón Helgi Egilsson, verkfræðingur og hagfræðingur, sem vakið hefur athygli fyrir framgöngu sína í Silfri Egils, skrifar á blogg sitt að Már Guðmundsson og Arnór Sighvatsson séu vanhæfir til að gegna stöðu Seðlankastjóra.
Þeir séu tveir af meginhöfundum hávaxtastefnunnar sem kom Íslandi á hausinn – og margsinnis var varað við. Meðal annars af Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz. Hávaxtastefnan falsaði í raun afkomu Íslendinga um langt árabil þar til hún hrundi með brauki og bramli.
Hefur Jón Helgi kannski eitthvað til síns máls?