
Eins og á Íslandi hefur allt traust horfið á stjórnmálamönnum í Bretlandi við efnahagshrunið – og þar bætist við hneykslið mikla þegar upp komst um allan kostnaðinn sem þingmenn létu almenning borga fyrir sig; sólpalla,
Timothy Garton Ash skrifar um þetta í Guardian og segir að nauðsynlegt sé að gera breska byltingu ef „ný stjórnmál“ eigi að verða að veruleika.
Hann mælir meðal annars með öflugri þingnefndum, breyttu kosningakerfi, hærri launum fyrir þingmenn – og nýrri stjórnarskrá.
Í því sambandi nefnir hann tvö höfuðplögg, stjórnarskrá Bandaríkjanna og stjórnarskrá Sambandslýðveldisins Þýskalands.