
Ég held að menn verði að anda djúpt.
Ég skrifaði litla færslu um Írland í gærkvöldi, varð það á að tengja framfarir á Írlandi við Evrópusambandið.
Sem vissulega breytti miklu á eyjunni grænu.
Eftir þetta dundi á mér póstur frá æstu fólki. Anna Sigrún Baldursdóttir skrifar um þetta pistil.
Ég held þetta sýni:
1. Það er bilun að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að fara í aðildarviðræður. Þar er enginn umræðugrundvöllur nema getgátur og gróusögur.
2. Það er hætta á að umræðan hérna verði óbærileg.
Við ættum að reyna að hlífa þjóðinni við því. Gæta okkur á liðinu sem er þegar komið ofan í skotgrafirnar.
Flestir Íslendingar eru ekki í neinni fylkingu hvað varðar ESB aðild. Þetta fólk má þola að það verður æpt og orgað á það af handhöfum stórasannleiks í málinu – við ættum að virða rétt þess til að umræðan sé þolanlega siðmenntuð.