
Athyglisverð grein frá Stefáni Snævarr um tíma markaðshyggju og ríkisafskipta.
Stendur meðal annars:
„Tryggva Þór láist líka að nefna þá staðreynd að þjóðarframleiðslan í BNA og hugsanlega heimsins alls jókst meira á ári á ríkisafskiptaskeiðinu á fyrstu áratugunum eftir stríð en á markaðsvæðingaskeiðinu mikla 1980-2007. Í ofan á lag þénar meðalkaninn minna nú á unna klukkustund en fyrir þrjátíu árum þrátt fyrir um 3% hagvöxt á ári að meðaltali. Hinir ríku eru orðnir miklu ríkari, þeir fátæku jafnvel fátækari og millistéttin stendur í stað, verður að puða myrkranna á milli og taka stór lán til að geta aukið kaupgetu sína. Um þetta geta menn fræðst í bókum á borð við The Conscience of a Liberal eftir Paul Krugman og America: Who stole the Dream? eftir þá Steele og Bartlett. Auk þess er fjöldinn alllur af stuttum pistlum á Netinu þar sem þetta er staðhæft, t.d. í nýlegum pistli hagfræðingsins Robert Reich sem sat í stjórn Bill Clintons.“
Og:
„En ég er mjög efins um að samfélagið lúti lögmálum, kannski er hægt að framkvæma lýðræðislegan sósíalisma eða frjálst markaðskerfi undir einhverjum mér óþekktum kringumstæður. Viðurkennt skal þó að kenningar kommúnista er enn vitlausari en kenningar frjálshyggjumanna, það er þrátt fyrir allt vit í sumu sem þeir síðarnefndu segja.“