
Borgaraheyfingin er kosin á þing sem andkerfisflokkur, gegn samtryggingu fjórflokksins, gegn gamla sýsteminu.
Og það verður að segja að þau byrja ágætlega.
Þór Saari gefur Bjarna Ben þarfa ádepu um hlutverk þings og ríkisstjórna.
Birgitta Jónsdóttir ljóstrar upp um fáránlegar umræður um hvort Framsóknarflokkurinn „eigi“ herbergi í þinghúsinu.
Og svo ætla þrjú úr þingflokknum ekki að mæta í messuna við upphaf þings í dag.
Er það ekki nákvæmlega svona sem flokkurinn á að starfa, vera frjáls og engum háður – líkt og skæruliðar í þinginu?