fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Ferskur eða fullunninn fiskur

Egill Helgason
Miðvikudaginn 13. maí 2009 12:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er með fisk eins og flesta matvöru að við viljum hafa hana sem ferskasta.

Við viljum helst ekki að hún hafi verið geymd lengi eða krukkað hafi verið mikið í hana.

„Unnin matvara“ eru orð sem hljóma ekki vel í eyrum.

Þess vegna virka hugmyndir um að auka fullvinnslu afla hér á Íslandi einkennilega, ekki síst þegar hugsanlega stendur til að leggja á sérstakt álag til að tryggja að svo verði.

Fiskur er langverðmætastur þegar hann kemst ferskur á markað, ekki þegar er búið að frysta hann í blokk.

Við eigum að keppa að því að selja fiskinn til viðskiptavina sem borga hátt verð fyrir hann og um leið verðum við að passa að arðurinn af honum berist til landsins.

Það er alls ekki gefið í því gjaldeyriskerfi sem við lifum í núna. Freistingin að svindla á því er mikil.

Ennfremur þarf að huga að því hversu mikið af arðinum fer í að borga skuldir ofurskuldsettrar útgerðar sem sólundaði auðlindinni sem henni var afhent til nýtingar, en telst þó vera þjóðareign samkvæmt lögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!