
Fjármálaráðuneytið var að birta þjóðhagsspá fyrir næstu fimm árin.
Það er kannski virðingarvert að þeir séu að reyna þetta, og reyndar er tekið fram í lokin að óvissuþættirnir séu margir.
Kannski væri eins hægt að rýna í telauf eða innyfi fugla eða stjörnumerkin?
Það torveldar svona vinnu nokkuð að enginn virðist vita almennilega hver raunveruleg skuldastaða þjóðarinnar er.
Í spánni segir að skuldir hins opinbera séu 1600 milljarðar. Það er stór tala, og fer hækkandi, nemur 111 prósent af landsframleiðslu.
Verðbólgan er sögð verða 10 prósent í ár. En staðreyndin er sú að nú er sama og engin verðbólga, fremur að blasi við verðhjöðnun.
Talað er um sveigjanleika. Hann felst aðallega í því að launin lækka allsvakalega og almenningur tekur á sig gríðarlega skuldabyrði og eignabruna.
Til samanburðar er svo hægt að vísa í endurskoðaða þjóðhagsspá sem var birt 17. janúar 2008, fyrir rúmu ári.
Skemmst er frá því að segja að ekkert sem þar stóð reyndist vera rétt.