fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

SjálfstæðisFLokkurinn

Egill Helgason
Miðvikudaginn 8. apríl 2009 19:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrkir FL–group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins eru ef til vill stærsta stjórnmálahneyksli Íslandssögunnar.

Það hefur ekki mátt opna bókhald stjórnmálaflokkanna. Við áttum bara að treysta þeim fyrir þessu. Svo opnast glufa og þá blasir þetta við.

Ótrúlega miklar leynilegar greiðslur frá stórfyrirtækjum. Peningar sem mátti ekki segja frá.

Óhreinir peningar.

Maður á eiginlega ekki orð yfir þetta. Ég er staddur erlendis. Fékk sms um þetta í gærkvöldi og segi eins og er: Ég trúði þessu ekki.

Þetta er svo miklu verra en nokkuð sem maður hefði getað ímyndað sér.

Ég endurtek: Leynilegar greiðslur frá auðhringum til íslensks stjórnmálaflokks.

Fyrir hvað var verið að borga? Hvað voru útrásarvíkingarnir að kaupa með þessu?

Nú er ljóst að málflutningur af þeirri tegundinni að Samfylkingin sé dótturfélag auðhrings er algjörlega fallinn um sjálfan sig.

Það mun enginn geta hlustað á slíkt framar.

Ekki að Samfylkingin gæti ekki haft beinagrindur í kústaskápnum líka – það má vel vera – og Framsókn er ábyggilega ekki alveg hrein heldur.

Þetta þarf allt að koma í ljós. Maður er orðinn vanur því að búast við hinu versta.

En það breytir því ekki að manni finnst nánast á þessari stundu að þurfi að taka Sjálfstæðisflokkinn, snúa honum við og búa till nýjan hægriflokk í staðinn sem er ekki með svona óþverra í farangrinum.

Nú er krafan sú að allir flokkarnir þurfa að opna bókhald sitt, undanbragðalaust.

Þá vitum við fyrst hvort þeir eru á vetur setjandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Of mikið samráð getur þýtt að það gerist ekki neitt

Jóhann Páll Jóhannsson: Of mikið samráð getur þýtt að það gerist ekki neitt