fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Seðlabankinn: Pilsfaldur svikamyllu

Egill Helgason
Föstudaginn 3. apríl 2009 17:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baldur Andrésson sendi mér þessa grein.

— — —
Hvarf 500 milljarða úr hirslum Seðlabakans 2008 er athyglivert.
Fyrir liggur að Seðlabanki Íslands var ekki  værukær, sofandi eftirlistaðili
með útblásnu kerfi fjármálastofnanna á Íslandi, sem nú hefur hrunið til grunna.
Síðustu fjögur árin fyrir hrunið fjórfölduðust t.d. heildarskuldir fyrirtækja og
urðu 16.000 milljarðar, ein talan sem lýsir gróflega brjálæðinu. 15 ára lands-
framleiðluverðmæti.

Jafnvel fyrir þetta blöðruskeið lýstu m.a.alþjóðastofnanir Íslenska efnahagskerfinu
sem risavöxnum, samhangandi vogunarsjóði  í alvarlegri fallhættu. Vorið 2006 lýsti
Moody´s þungum áhyggjum sínum en því var þá greinilega svarað af stjórnvöldum og
Seðlabanka Íslands að íslenska ríkið væri hinn trausti bakhjarl. Pilsfaldið var öruggt skjól.

Haustið 2007 höfðu íslensku einkabankarnir tapað öllu lánstrausti erlendis.
Svikamylla þeirra var áður keyrð með erlendum skammtímalánum, oft fengnum
úr skúmaskotum, grátt gervifé í alþjóðaumferð. Íslenskir sjóðir og verðmæti
voru þegar mergsogin og yfirveðsett.  Krónubréfasala stöðvaðist.
Meðal viðbragða voru Icesave,Edge og Glitnisínnlánsreikningar erlendis
sem buðu villta innlánsvexti-örvæntingarfull sókn í bensín fyrir svikamylluna.
Ríkissjóður Íslands og Seðlabankinn hríðféllu í lánsmati og brátt varð ríkinu
settur stóllinn fyrir dyrnar varðandi lántökur erlendis. Krosstré braskaranna .

Eðli peningasvikamyllu eru óheftur vöxtur eða dauði !  Seðlabanki Íslands
var yfirlýstur verndari myllunar í guðföðurhlutverki. Ráðrúm hans til hjálpar
fór  þverrandi, sjálfur í fjárþröng og litinn hornauga alþjóðlega. Eitt hjálpar-
tækið var að takmarka bindisskyldu banka hérlendis, afnema hana erlendis !
Þar með losnuðu bankar að miklu leyti við skyldu til að eiga varasjóði, spila-
peningarnir jukust að sama skapi. Í ársbyrjun 2008 voru örlög myllunnar ráðin.
Meðal dauðateygja myllunar var gjaldeyrisbrask í upphafi ársins, stöðutaka
gegn fallkrónunni. Seðlabankinn gengdi lykilhlutverki, greiddi götu með því að
dæla milljörðum í svikamylluna gegn eiturbréfum og seldi henni ríkisskuldabréf,
sem veðsett voru í Lúx gegn gjaldeyri. Ásókn myllunnar í gjaldeyri felldi krónuna
alvarlega um miðjan mars 2008. Það leidd til stundargróða svikaranna, en
almenningi tók að blæða, efnahagskerfið varð fyrir losti. Krónan var stórsködduð.

Seðlabanki Íslands var trúr verndarahlutverki sínu við svikamyllu fjármálafyrirtækja
löngu eftir að dauði hennar var fyrirséður. Frá ársbyrjun 2008 dældi bankinn út
fjármunum sem yfirskyggja öll fjárlög íslenska ríkisins í þessa deyjandi myllu, án
skilyrða gegn ónýtum veðum í myllunni sjálfri ! Þetta voru gjafagjörningar.
Þá fyrst þegar Seðlabankinn sprakk, varð sjálfur tæknilega gjaldþrota, sjálfur í
gríðarskuld við ríkissjóð, þá sprakk líka svikamyllan, sem á honum nærðist .

Bankahrunið varð staðreynd. Við blasir líka grímulaus sóun Seðlabankans 2008 á
almannafé, sem nú er stærsti einstaki skuldaböggull ríkissjóðs, yfir 500 milljarðar.
Það er grátlegt að Seðlabankagjöfum var sóað í gjaldeyrisspákaupmennsku og´
hundruð milljarða útlánagjafir gæpabanka á elleftu stund líftíma þeirra. Þannig var
almannafé nýtt til að brjóta endanlega fæturna undan efnahagskerfi Íslands.
Sjálfur hljómsveitarstjóri þessarar harmkviðu var einmitt Seðlabanki Íslands.

Lengi má þvarga um hvor er sekari, þjófur eða þjófnautur. Þvarga má um hvort
gáleysi telst lögbrot, sekt felist í heimsku.  Íslendingar þvarga helst um tittlingaskít.
Öll vitum við hver fór með lyklavöldin að fjárhirslum Seðlabankans á gjafatímanum.
Lyklaverðirnir þrír segjast nú saklausir. Þeim var þrýst í öðlingshlutverkið segja þeir
en enginn nefnir leynilega þrýstiaflið eða heimildarleysi bankans til fjárgjafanna miklu.
Bankaránið úr Seðlabankanum er af þeirri stærðargráðu að það er ofvaxið skilningi.
Aldrei hefur nokkur Seðlabanki heimsins sýnt af sér örlæti á borð við þann íslenska.

Almenn sátt er í íslenskri stjórnmálaveröld um að leiðsagnarhlutverk Seðlabankans
og gjafastuðningur gagnvart fallinni svikamyllu liggi milli hluta um alla framtíð. Einföldum
spurnum er gjarnan svarað með tækniorðasafni hagfræðinnar, latínu nútímans. Sá
sem spyr stendur eftir sem ærður og óstöðugur í skammarkrók hins ólærða. Sátt
er því meðal valdafóla allra flokka um að leikvöllur smátriðanna verði vettvangir þeirra.
Eftir þessari pípu valdafóla spila fjölmiðlarnir, upplýsingagjafar almennings.
Án upplýsingar  verður ekkert lýðræði. En lýðræði er stórt orð. Óskiljanlegt ólærðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki