fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Ísland, Enron, margt er líkt með skyldum

Egill Helgason
Miðvikudaginn 25. mars 2009 15:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftirfarandi ummæli Gylfa Magnússonar á blaðamannfundi í gær eru mjög athyglisverð. Takið eftir, þetta er viðskiptaráðherra landsins og háskólakennari í hagfræði. Og hann nýtur þess að vera frjáls undan flokksvaldi. Gylfi er að tala um loftbóluhagkerfið, viðskiptavildina, hvernig fyrirtækin bjuggu til eigið fé með brellum. Af orðum Gylfa má ráða að hann telur hugsanlegt að sumt í þessum gjörningum sé saknæmt.

— — —

Bankamenn bjuggu til eigið fé með kúnstum

Eigið fé bankanna var aukið með reiknilistum og er eitt af því sem fór úrskeiðis í fjármálakerfinu. Þetta er mat Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra.

„Já, ég held að það sé alveg augljóst að eitt af því sem gerðist í hrunadansinum var að menn bjuggu til eigið fé með því annars vegar að breyta lánsfé í eigið fé með því að lána til hlutabréfakaupa og síðan bjuggu menn til eigið fé á pappírnum með því að kaupa eignir á verði sem var mjög óraunhæft og færa muninn sem viðskiptavild,“ sagði Gylfi á fundi með blaðamönnum í gær.

Atli Gíslason, þingmaður VG, sagðist í Fréttablaðinu í gær hafa heimildir fyrir að eigið fé bankanna hafi verið „fixað“. Með aukinni viðskiptavild fengist aukinn hagnaður sem aftur leiddi til möguleika á auknum arðgreiðslum. Loftbóluhagnað og loftbóluarðgreiðslur kallar Atli slíkar kúnstir.

Gylfi er á sama máli. Menn hafi búið til fjármagn á pappírnum sem engin innstæða hafi verið fyrir.

Spurður hvort forvígismenn bankanna hafi stundað ámóta viðskiptahætti og stjórnendur bandaríska fyrirtækisins Enron gerðu og leiddu til þrots þess sagði Gylfi margt líkt með skyldum. „Auðvitað voru menn að blekkja sjálfa sig að hluta og aðra í leiðinni,“ sagði hann og kvaðst telja að sumt af háttalaginu verði rannsakað sem sakamál. Það væri þó í höndum þar til bærra stofnana að ákvarða slíkar rannsóknir.

Gylfi segir hætt við að viðskiptavild sé ofmetin í bókum þeirra fjármálafyrirtækja sem enn starfi. Hún hafi ekki verið færð niður. Til hins beri þó að líta að slík bókfærð viðskiptavild sé ekki mikils virði nú um stundir.

Fram kom í Fréttablaðinu í gær að samanlögð viðskiptavild Glitnis, Kaupþings og Landsbankans jókst úr tæpum nítján milljörðum árið 2003 í 123 milljarða árið 2007. Á sama tíma jókst eigið fé bankanna þriggja úr 92 milljörðum í 714 milljarða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki