
Fiskisaga er sorglegt fyrirbæri. Hringur sem ætlaði að ná undirtökum í fisksölu í bænum. En seldi verri fisk en gömlu fisksalarnir og á hærra verði.
Tók líka yfir hina fyrrum frábæru kjötverslun Gallerí Kjöt og eyðilagði hana. Það sárvantar alvöru slátrarabúðir í bænum.
Litlu fisksalarnir eru sem betur fer ennþá til. Ég fer í fiskbúðina á Freyjugötunni. Alltaf glænýr fiskur, gott verð og elskulegt viðmót hjá eigendunum.