
Geir Haarde óttast að ákvæði í stjórnarskrá um sameign þjóðar á náttúruauðlindum muni grafa undan kvótakerfinu.
Í frétt Morgunblaðsins segir:
„Geir H. Haarde spurði Jóhönnu hvort hún gæti svarað því afdráttarlaust að ákvæði sem lagt er til að verði sett í stjórnarskrá um að náttúruauðlindir séu þjóðareign, grafi ekki undan grundvelli kvótakerfisins. Jóhanna svaraði því til að ákvæðið skerti ekki réttindi þeirra sem hafa fengið úthlutað veiðiheimildum í fiskveiðistjórnarkerfinu.“
Á þá að skilja það sem svo að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að fara í næstu kosningar með þá afstöðu að kvótakerfið sé gott og réttlátt?
Þrátt fyrir fyrir hrikalega skuldasöfnun sjávarútvegsins?
Þrátt fyrir veðsetningu sjávarauðlindarinnar?
Þrátt fyrir að mikill meirihluti landsmanna sé á móti þessu kerfi?