
– Það er mjög tímafrekt að vera rithöfundur, dæsti Kári eftir að hann hafði skrifað sögu fyrir skólann.
Sagan átti að fjalla um fjallgöngu.
Hún er svona:
„Einu sinni voru fjallgöngumenn Fjalli og Steinn. Þeir voru að klifra upp á Mont Everest. Þeir voru bestu fjallgöngumenn í heimi. Þeir notuðu skó með oddum. Þeir fóru upp á topp. Þeir voru með nesti. Þeim var kalt og svo fóru þeir aftur heim.“
Svo lagðist hann þreyttur upp í sófa og sagði – spilaðu tónlist fyrir mig.
– Hvað? sagði ég.
– Spilaðu Frangkosyriani fyrir mig.
Það gerði ég og hann sofnaði í öllum fötunum.
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=dNIIY6KfLBQ&feature=related]
Lagið fjallar um rómversk-kaþólska (frankneska) stúlku frá eyjunni Syros sem söngvarinn festir ást á.
Syros er eyja með merkilegri smáborg sem nefnist Ermopouli – óvenjumörgum rómversk-kaþólskum íbúum – og þaðan kom höfundur lagsins, stórkostlegur alþýðutónlistarmaður, Markos Vamvakaris að nafni.