fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Ekki úr háum söðli að detta í Seðlabankanum

Egill Helgason
Miðvikudaginn 4. mars 2009 15:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er hugsanlega dálítið ankanalegt þegar sá frómi maður Jón Sigurðsson skrifar um að trúverðugleiki Seðlabankans sé í tætlum?

Jafnvel hræsnisfullt.

Nú veit ég ekki betur en að Jón hafi setið í bankastjórastóli þar, í sæti sem var talið í eigu Framsóknarflokksins.

Í því sátu á undan Jóni – Steingrímur Hermannsson og Finnur Ingólfsson!

Steingrímur sagðist aldrei hafa haft það jafn náðugt og þegar hann var í Seðlabankanum, Finnur notaði embættið sem millileik áður en hann varð ólígarki.

Var trúverðugleiki bankans mikill með þá innanborðs?

Eða þegar Davíð Oddsson kom í kjölfarið á Birgi Ísleifi Gunnarssyni, öðrum fyrrverandi forystumanni í Sjálfstæðisflokknum?

Reglan hefur verið að ráða kommisara eða lúna pólitíkusa úr flokkunum í Seðlabankanum, í bland við hagfræðinga sem njóta sæmilegs álits.

Samt enga sérstaka skörunga, það hefði getað ruglað sýsteminu.

Þetta er kerfi sem nú hefur beðið algjört skipbrot.

Vonandi dettur engum í hug að koma því á laggirnar aftur.

Svo má líka fara lengra aftur og spyrja hver hafi verið trúveðugleiki Seðlabankans á árunum þegar Jóhannes Nordal gekk erinda Kolkrabbans og valdaklíkanna í landinu eins og Guðni í Sunnu lýsti til dæmis í ævisögu sinni.

Um svipað leyti var Tómas Árnason, fyrrverandi framsóknarráðherra líka bankastjóri – og svona má rekja söguna aftur.

Staðreyndin er sú að þeir hafa ekki úr sérlega háum söðli að detta í Seðlabankanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki