fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Úr lausu lofti

Egill Helgason
Fimmtudaginn 26. febrúar 2009 14:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins,  segir að við eigum ekki að tala niður efnahagslífið. Það er rétt, of mikil bölsýni getur verið lamandi.

En við eigum samt að hugsa krítískt og passa upp á að það sem við byggjum upp úr rústunum verði ekki það sama gamla.

Því ég að fáir aðilar þurfi jafn mikið á tiltekt að halda í sínum ranni og einmitt Samtök atvinnulífsins. Það sést einfaldlega á því hvernig stjórnin þar er skipuð og þeirri stefnu sem samtökin hafa rekið. Ég er ekki frá því að þurfi einhvers konar menningarbyltingu þar innandyra og hjá Viðskiptaráði.

Jafnvel hjá Alþýðusambandinu líka.

Þór talar um þá sem spáðu 40 þúsund manns atvinnuleysi.

Og 100 eða jafnvel 1000 prósent verðbólgu.

En fyrst það hafi ekki gengið eftir, þá sé þetta bara nokkuð gott hjá okkur.

Ég man ekki eftir að hafa heyrt þessa spádóma og hef þó fylgst vel með. Þór segir að í þessum hópi séu „nokkrir“ hagfræðingar.

Hins vegar er staðreynd að atvinnuleysið nálgast óðfluga tíu prósentin – og að það eru í raun miklu fleiri störf sem eru að tapast því mikið af erlendu starfsfólki er horfið úr landi.

Og að krónan er í gjörgæslu strangra viðskiptahafta – sem er skýringin á því að hún hefur ekki fallið meira.

Svo tekur annar maður þessi orð Þórs upp og fer að tala um 40 þúsund atvinnulausa og 1000 prósenta verðbólgu – og þá er nánast búið að búa til staðreynd – úr lausu lofti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi